Stjórnarráðið
02.10.2006 20:27:46 / dresi

....

Vá þessi síða er alveg steindauð! Getið tékkað á http://www.themansion.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 17:52:59 / dresi

Tónleikar

Á til með að monta mig hérna aðeins!!!!! :) Nýbúinn að fara á Rolling Stones sem vel á minnst var hrein snilld!!! Þvílikir tónleikar. ja hérna. en já svo er ég að fara á Sufjan Stevens 12. nóv og síðan á Muse í Berlín 25. nóv. ahhhhhhhhh.................. Þvílík snilld, já vildi bara koma þessu frá mér Takk takk Dresi

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 16:22:41 / dresi

Nú ligg ég í því.....

Vá.... Bjórinn er svo ódýr hérna. Þetta er eiginlega of gott. Það hefur verið mikil bjórdrykkja síðan ég lenti hérna síðasta laugardag. Vikan hefur einkennst af sem sagt bjór, brúarsmíði, nýnemaferð, magavandamálum og fjöri. Annars lítur þetta bara vel út hérna. Námið byrjar af alvöru núna á mánudaginn. Ég á eftir að redda mér reyndar rúmi og skáp en allt það mál verður að bíða þar til að gestagangurinn minnkar eitthvað.

Rolling Stones eru á morgun. Við keyrðum áðan fram hjá sviðinu og það er ekkert nein smásmíði. Þeir eru einnig þekktir fyrir svaka show. Það er búið að selja 80.000 miða á tónleikana. Í Horsens búa um 60.000. Þannig að það eru fjöldinn allur að kíkja hingað. Bærinn verður ábyggilega mjög daufur á meðan tónleikunum stendur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 23:47:20 / dresi

Danske dager

Ég er fluttur til Danaveldis eftir rúmlega 12 daga! Verð þar í allaveganna í eitt ár. Ég þarf að dusta rykið af dönskukunnáttunni minni. Finna glósurnar úr tímunum hjá henni Rósu (Heitir hún það ekki annars)

Heyrði í Atla í gær en kallinn var bara á Radiohead tónleikum í Ungverjalandi fengum við að heyra svona eitt og eitt lag með þeim.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 15:34:28 / dresi

Sólmánuður..

Ég verð að segja það eins og er...: Ég er kominn með nóg af sólinni!!! Mér er farið að líða eins og ég sé með einhvern sólmagnet á mér. Hvert sem ég hef farið í þessum mánuði hefur hætt að rigna og sólin komið fram með sólbruna og sólsting og öllu því tilheyrandi. En það er kannski frekar rangt eitthvað að vera kvarta undan góðu veðri. Ég var samt sem áður feginn að koma í úðann í keflavík eftir kelduna.

Leti og kæruleysi hefur einkennt þessa síðu síðustu mánuði, það verður bara að segjast. Mun það að líkindum lítið breytast, en svona til þess að updata það sem hefur gerst síðustu 2 mánuði í nokkrum línum þá er það svo: Atli er að vinna á Hóteli fyrir vestan (man nú ekki hvar nákvæmlega) og höfum við lítið séð kallinn. Við náðum allir prófum( það er að segja þeir sem tóku þau :) ) Enginn hefur búið í kjallaranum í mánuð núna fyrir utan eina eða tvær nætur. Jómbi fluttur í kef og ég hef verið að ferðast eilítið mikið.

Hróarskelda er nýafstaðin og lét ég mig ekki vanta sem og Jómbi. ÞEtta var hin fínasta hátíð með öllu því frábæra tilheyrandi svo sem: sólbruni, pissustækja, svitabaðsuppvakningu, hlandveiki, þynnku, tungubruna af völdum sjóðandi bjórs, blackouti, stríki, mönunum, bjórleikjum, bongum, gítarglamurs, falskra söngradda, Tuborg, íslensks camps með finnsku ívafi, góðra hljómsveita og góðum hóp. Uppskrift að góðum tímum. Þetta er einfaldlega besta útihátíð sem farið getur. Hef reyndar einungis prófað þær hér heima og svo Roskilde, en common! Hvað getur slegið þetta út??!!

Ég ætla ekki að fara út í hvaða hljómsveitir ég fór á og gefa þeim einkunn en verð þó að nefna það að þegar Sigurrós spilaði upplifði ég mesta gæsahúðahroll í manna minnum!

Það sem tekur við núna er stór og mikil ákvörðunartaka. Ég hef ákveðið að hætta í félagsfræði og fara út í meira svona Praktískt nám, og stendur valið um að fara til DK í nám eða skipta um braut hér í HÍ.

Nú er bara að vona að Atli og Jómbi taki við sér og skrifa eitthvað hér bráðlega...


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 22:47:52 / dresi

Skóli búinn??

Já ég er búinn að prófum (Það var nú reyndar bara eitt) og sumarið gengið í garð. En ég er þó ekki alveg búinn. Ég á eftir að skila inn einni ritgerð. Ég hef ekki töluna yfir þann fjölda skipta sem ég hef sest niður og byrjað að rita eitthvað en hætt síðan. Maður er fyrir löngu síðan kominn í sumarfílinginn.

Ég ætla að hætta í félagsfræði. Er núna að skoða aðra valmöguleika í námi og er ekkert sem kemur frekar til greina en annað.

Það eru margir búnir að vera að tala um þetta myspace undanfarið og vildi ég ekki vera einn af þeim sem kinkuðu bara kolli þegar umræðunni bar að því efni þannig að eg tékkaði á þessu. Og svo til þess að kommenta hjá einhverjum þá þyrfti maður að vera meðlimur. Þannig að það endaði með því að ég skráði mig í þetta. Veit ekki enn hvað þetta allt apparat er. En kynnin mín á myspace er frekar lík kynnum mínum af blogginu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 08:40:58 / dresi

Nýtt!!!

Ég sá mér ekki annað fært en að deila því hérna að það er komin þvottavél (og þurrkari) hingað heim. Það var orðið frekar þreytt að kíkja reglulega til Keflavíkur með 50 kíló af óhreinum fötum.

Annað nýtt er að einn íbúinn fyrir ofan er byrjaður að læra á trompet, og deilir hann þeirri reynslu með okkur hérna. Maður ætti kannski að byrja að læra á fiðlu svona til þess að launa honum yndislegu hljómana.

Nú er það þannig að við erum hérna allir komnir í stjórn í félögunum okkar. Ég reyndar mun hætta í dag, nema þá ef engin býður sig fram.

Ég er hérna að horfa á morgunsjónvarpið (fá menninguna beint í æð) og það var auglýsing um þátt sem heitir Beauty and the Geek (allt er nú til) og ég get svo svarið að ég kannast við einn þarna, gott ef ekki hann hafi gifst frænku minni nú um áramótin. Hann er allaveganna fáranlega líkur honum. Veit einhver frá hvaða ári þessir þættir eru? :)

Já, síðasta vísindaferðin hjá mér í kvöld sem og kosningakvöld. Við förum til K. Karlsson en þau sjá um innflutning á ýmsum vörum svo sem Becks. Þetta verður haldið í Vínkjallaranum. Þeir ætla að kynna bjórinn :haha: Þetta verður ljúft, og verð ég bara að segja að ég er kominn með vatn í munninn við tilhugsunina. Það verður víst dræm mæting á þetta af hálfu félagsfræðinga, þannig að maður býður bara félögunum. Biggi reyndar er bannaður í ferðir hjá okkur :D

Það eru komin 10 ár síðan ég fermdist. 10 ár! Rosalega líður tímanum. En það verður haldið upp á það núna á laugardaginn. Verður án efa skemmtilegt... En skólinn kallar!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 12:08:39 / bakkus

i´m Ron Burgandy?

Jæja, mér fannst kominn tíma að koma með eina færslu hérna.  Ég vill byrja á því að óska Andrési til hamingju með að vinna skoðunakönnuna um hver ætti best heima í köllunum. Nú er bara mál að fara sækja um;)

Sumarið er farið að skýrast fyrir mér á seinnustu dögum.  Það er orðið nokkuð visst að ég muni ekki fara á Hróaskeldu og mun ég gráta mig í svefn næstu daga yfir því.  En aftur á móti þá er kallinn að fara að skella sér til Slóvakíu í ágúst:D Ég og my possey í fornleifafræðinni að fara að grafa upp rómverskt virki(camp) frá því á 1-3 öld eftir krist:haha:  Við munum vera grafa upp baðhús þegar við verðum þar ásamt að fara í stuttar ferðir yfir í Ungverjaland að skoða svipaðar minjar.  Við munum gista í litlu þorpi á landamærum Slóvakíu/Ungverjalands. Þetta á örugglega eftir að vera rosalega gaman er ég ekki frá því að maður sé að farinn að hlakka til:D 

Síðan er möguleiki á því að ég verði á Hólum í júní í vettvangsskóla ef peningar leyfa þannig að ef þið vitið um einhvern sem hefur áhuga að borga góða fúlgu fyrir nýra í nokkuð góðu ásigkomulagi, látið mig vita:)  En ég var akkurat að ljúka þátttöku minni í læknisrannókn í dag sem tengist að sprauta heiladindulshormónum í mig eða einhverju álíka:^)

En já, nóg í bili! Ég er farinn að sjá bjór kvöldsins í hyllingum og .......

Atli Birkir


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 03:08:34 / dresi

Rokkjakkinn

Er málið permament?! Ég þekki nokkra sem hafa verið að tala um það að fá sér þessar blessuðu krullur í hárið á sér svona til þess að breyta til, en ég gæti ekki séð mér það persónulega fært um að fá mér svoleiðis. Eða hvað.. Málið er að núna á laugardaginn kíkti Stinni á djammið með okkur og fékk hann jakkann minn lánaðann. Og verður það að segjast að rokkaðra hef ég ekki séð síðan Svavar tók Morrison á þetta. En fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Stinni vel krulluhærður. Það sem meira er, hann komst í bol af honum Jómba. Kallinn á skilið gott klapp!!:D Og fær hann 5 rokkstig fyrir.

Er dEUS málið? Þeir eiga að spila hérna bráðlega og ég er bara nýlega búinn að kynna mér þá. Það litla sem ég hef heyrt er svo sem ekki allt of slæmt. Ehhh, maður sér til.

En hvað er með þessa könnun hérna! Það eru þarna 3 í viðbót sem hægt er að merkja við:!: Ekki alveg farið fram eins ég hafði séð það fyrir mér :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 21:34:56 / dresi

Alþjóðlegt djamm

Nú þegar maður er rétt við hliðina á pöbbum eru fimmtudagskvöldin að verða fín djammkvöld. Alltaf eru einhverjar hljómsveitir að spila á þessum kvöldum. Nú síðast fórum við nokkrir á The Rushes(held alveg örugglega að hún heitir það) og voru þau mjög þægileg við hlustun. En sumir eru fastir við hart rokk og þurftum við því að fara tiltölulega snemma.

Ef það er eitthvað sem ég vil setja út á fimmtudagsdjamm þá er það að þegar maður er kominn í ,,gírinn" þá er maður vinsamlegast beðinn um að yfirgefa svæðið. Svona eins og þurfa að hætta að míga í miðjum klíðum!

Hmmm, hvað er framundan. Nú eru bara verkefnivinna framundan. Nokkuð sem hljómar hundleiðinlega, en er nú bara nokkuð spennandi ef satt skal segja. Nú er svo komið að maður er farinn í meira sérhæfðari kúrsa. Maður er í tímum sem eru meira eftir áhugasviðinu. Engin stjórnmálafræði!

Það eru sumir nú að njóta sumarveðurs úti, og hitinn getur víst verið óbærilegur hjá sumum. En það lið hefur ekki vaknað í kjallaranum okkar þegar frostlaust er úti. Held að við séum of nálægt helvíti. Það er stundum eins og gufubað hér hjá okkur, það væri hægt að spæla egg á flísunum okkar(Þetta er ekki grín!) Það er orðið þannig að 3 hálfnaktir strákar eru hérna að staðaldri, og virðist hann Atli vera furðuánægður með það.:haha: Ég kvíði bara fyrir sumrinu þegar hitinn úti fer yfir 5 stig:|

Já, með titilinn.. Já það er alþjóðlegt djamm á Kaffibarnum


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 16:09:01 / jombi

Geggjuð mörk!!

Þið verðið að kíkja á þennan link, þó ekki væri nema bara fyrir lagið sem er undir..... Alger snilld!!!!!!

Og til að svara magga þá er ég ekki að verða næsti Steven Segal :D ég ákvað að hætta í þessu... var ekki alveg fyrir mig, allavega ekki í þetta skiptið...

http://www.youtube.com/?v=rtInxDWzGiI 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 16:32:43 / jombi

Bull og vitleysa!!!

Ef ég byrja bara að skrifa núna og held áfram þar til ég stoppa að slá lyklaborðið, hvernig ætli það kæmi út. Núna er það allavega ljóst að bull mun fylgja hér á eftir þannig að ég bið þig að bara hætta að lesa ef þu nennir ekki að standa í því að lesa svoleiðis kjaftæði. Allaveg þá var einu sinni lítil risi sem var á stærði við mig sem lenti í þvi að missa niður um sig buxurnar á fjölförnu stræti. Það hefði nú ekki verið svo mikið stórmál ef hann hefði ekki verið í bleikum nærbuxum. Fólk fór samstundis að benda á hann og hlæja að honum... Hvers konar risi er það eiginlega sem er í bleikum nærbuxum? hugsaði það með sér. Nú jæja hann var sérstakur riddari sem tilheyrði reglu hinna bleiku nærbuxna sem berjast á strætum borgarinnar við allt óréttlæti sem þeir verða vitni að, hálfgerðir nútíma hróa hettir. En þeir lenda oft í vandræðum þar sem risar eru frekar tregir og  þar afleiðandi miskilja þeir oft kringumstæðurnar sem þeir eru að reyna að laga... Oftar enn einu sinni hafa þeir lent í lagana vörðum fyrir að henda gömlum konum yfir götur. Þeir voru samt bara að reyna hjálpa þeim yfir götuna en löggan (fucking assholes, fuckin pigs) virðast ekki skilja góðverk þeirra og sekta eða handtaka þá oft.. En sem betur fer þá gerist það ekki alltaf og því hefur þessi leyndardómsfulla regla náð að koma sínu á framfæri..... ALL YOU NEED IS LOVE

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 10:18:24 / dresi

Einleikur

Þeir sem þekkja til hans Jómba vita að þegar er verið að segja einhverja sögu eða brandara þá á kallinn til með að halda áfram með söguna eða brandarann löngu eftir að fólk er hætt að hlusta á hann eða taka eftir honum. Þetta köllum við einleikinn hjá honum. Loks getur sá ágæti maður fengið uppreisn æru þegar kallinn mætir á æfingu hjá stúdentaleikhúsinu. Furðulegt nokk þá tel ég að af öllum strákunum þá sé hann (ja og biggi) besti kandidatinn til þess að geta leikið eitthvað. Persónulega gæti ég ekki leikið til þess að bjarga lífi mínu, en ég held að jómbi lumi á einhverju þarna. Það er sem sagt æfing í kvöld hjá þessu liði og ætlar jómbi að fara, ég er svona að kitla við hugmyndina að fara bara til þess að sjá hann jómba performa.

Náðuð þið þessu öllu?? Jómbi er að fara á æfingu!

Já, nýtt ár komið og skólinn byrjaður aftur. Árið byrjaði nú ekki vel hjá manni. Kreditkortið mitt hvarf um áramótin, síminn steindrapst, tölvan enn ónýt og lítið sem ekkert útborgað. jebb, lífið var "frábært" í nokkra daga! :lol:

Biggi kallinn er með myndir frá gamlárskvöldi og ætlaði að láta okkur strákanna fá á netið. En kallinn hlýtur að vera svona ,,upptekinn" að hann hefur ekki tíma :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 20:27:20 / jombi

What the Fuck

Ok, nuna a fimmtudagin tha er eg ad kikja a aefingu med studentaleikhusinu. Thad verdur ahugavert ad sja hvernig thad gengur, ekki beint hin besti leikari i heimi. Thau hljota ad vanta ljosamann eda eitthvern i fatahengid, get kannski tekid thad ad mer...:) verdur madur ekki ad taka that i arty farty lifinu annas ef madur flytur i 101, held thad se svona oskrad regla annas koma ibuarnir med kyndla og faela thig ut ur baearfelaginu sinu.. Skolin byrjadur og eg held mig vid gamlar hefdir, maeti thegar eg nenni... annas er allt gott ad fretta utur kjallaranum, sumir samt frekar peningalausir en vid skrimtum... tokum samt vid ollu gjafafe sem thid viljid lata af hendi til gods malefnis...

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 13:42:30 / bakkus

Nýtt ár, ný færsla!

Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð og öll yndislegu áramótaheitin farin að fljúga um;)  ég ákvað að strengja nokkur til að geta brotið þau við fyrsta tækifæri:D  Efst á lista var að koma mér aftur í ræktina en sum ykkar muna kannski eftir 19 daga rispunni sem ég tók í líkamsrækt á seinnasta ár:lol:

En allavega þá fór ég í gymið í Íþróttahúsi háskólans í gærkveldi og var farinn að sjá ljós í enda gangsins eftir 2.5 km á hlaupabretinu og án gríns þá var ekki langt frá því að líða yfir mig:cry:  Gymið var reyndar ekki það stórt, svipað og íbúðin okkar er "stór".

En ég læt þetta nægja í bili sem fyrsta færsla ársins 2006!!! Ótrúlegt!!! En við ætlum að reyna að vera duglegri að blogga á næstunni.  Talandi um það, þá hlýtur að fara að líða að þessari frábæru mánaðarlegu færslu hjá sénanum okkar:)

Bless í bili Atli Birkir


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3